Útgáfa: 26. september 2026. Ábyrgðaraðili: 360 slf., Rafn Franklín Johnson, Hreyfing Heilsulind, Glæsibær, Reykjavík, rafn@360heilsa.is.
360 Heilsa er einkaþjálfun í fjarþjálfun. Ekkert í appinu, hvorki frá Rafni né gervigreindinni, er læknisráðgjöf, greining eða meðferð, og kemur ekki í stað læknis, sjúkraþjálfara eða annars heilbrigðisstarfsfólks.
Ef þú ert með hjartasjúkdóm, háan blóðþrýsting, sykursýki, ert ólétt eða nýbúin að eiga, hefur farið í aðgerð nýlega, ert með meiðsli eða langvinnan sjúkdóm, eða læknir hefur ráðlagt þér að æfa ekki, ræddu við lækni áður en þú byrjar. Umsóknin spyr um þetta; svaraðu heiðarlega.
Hættu æfingu og leitaðu læknis ef þú finnur fyrir brjóstverk eða þrýstingi, andnauð umfram það sem áreynslan skýrir, svima, yfirliðstilfinningu, skyndilegum skörpum verk, dofa eða óeðlilegum hjartslætti. Í neyð hringdu í 112. Verkur sem lagast ekki á tveimur vikum á heima hjá sjúkraþjálfara eða lækni, ekki í appinu.
Gervigreindin (360 Heilsa) er aðstoð Rafns, ekki manneskja. Hún getur haft rangt fyrir sér. Hún les ekki skilaboð í rauntíma og enginn vaktar spjallið allan sólarhringinn; ef þú skrifar um neyðarástand er þér bent á 112. Rafn les og samþykkir hvert æfingaprógramm; hann svarar skilaboðum eins fljótt og hann kemst í það, oftast innan sólarhrings.
Þú metur sjálf/ur hvort æfing henti þér þann daginn, notar álag sem þú ræður við og lætur Rafn vita um verki, meiðsli eða breytingar á heilsu. Árangur er einstaklingsbundinn og engu er lofað um hann.